Stjúptengsl: Ritun 1 (gervigreind)
Verkefni: Stjúptengsl í fjölskyldum
Markmið: Að dýpka skilning á flækjum og áskorunum stjúpfjölskyldna og þjálfa gagnrýna notkun á gervigreind.
Skref 1: Sjálfstæð vinna (án gervigreindar)
Skrifaðu 150–250 orð þar sem þú útskýrir hvað stjúptengsl eru og hvaða áskoranir eða tækifæri þau fela í sér. Reyndu að nota einhver af eftirfarandi hugtökum í textanum:
Stjúpfjölskyldur, Stjúpblinda, Stjúpforeldrar, Öskubuskuáhrif, Staðalmyndir, Skólakerfið og stjúpfjölskyldur, Að setja sig í spor annarra, Ég skilaboð, Að setja mörk, Sveigjanleiki í samskiptum, Heimilisfundir, Fjölskylduóróinn, Þægindahringurinn, Að vinna með skilnað, Börn skipta ekki foreldrum út, Nýjar og gamlar venjur, Að velja sér orustur, Misbeiting eftir fjölskylduformi, Einkenni góðrar foreldrasamvinnu, Ábyrgð og hlutverk barna í stjúpfjölskyldum
Skref 2: Aðstoð með gervigreind
Notaðu gervigreind (t.d. ChatGPT) til að fá aðra útgáfu af texta um stjúptengsl, sem byggir á sömu hugtökum. Veldu t.d. aðra nálgun, annað sjónarhorn (barn, foreldri, kennari) eða spyrðu um rannsóknir á viðfangsefninu.
Skref 3: Samanburður og niðurstaða
Berðu saman eigin texta og textann frá gervigreind.
Svaraðu í 100–150 orðum:
- Hvað var betra við þinn texta?
- Hvað var betra við texta AI?
- Hvernig getur gervigreind hjálpað – og hvað þarf samt að gera sjálfur?
Lokaafurð: Skilaðu bæði textunum tveimur og samanburði í einni skrá eða í verkefnakerfi.