Skip to main content

Blocks

Skip Navigation

Navigation

  • Home

    • Site pages

      • My courses

      • Tags

    • My courses

    • Courses

      • Almennt nám

        • kennfel

        • almennfel

        • felhvit

        • felhvitII

        • Sakamál

        • rannfel

        • kennrann

        • felloft

        • félnút

        • afbalmenn

        • heilsufél

        • innggrunn

          • Inngangur að félagsfræði: Grunnur að skilningi á s...

          • Hvað er félagsfræði?

          • Frumkvöðlar og siðferðisleg álitamál

          • Félagsfræðilegar rannsóknaraðferðir

          • Samfélag

          • Einstaklingurinn í samfélaginu

          • Menning

          • Fjölskyldan

          • Baksvið fjölskyldunnar

            • QuizBaksvið fjölskyldunnar - lestrargreining

            • GameBaksvið fjölskyldunnar: viltu vinna milljón (1)

            • GameBaksvið fjölskyldunnar: viltu vinna milljón (2)

            • QuizBaksvið fjölskyldunnar: 1. verkefni

            • QuizBaksvið fjölskyldunnar: 2. verkefni

            • QuizBaksvið fjölskyldunnar: 3. verkefni

            • QuizBaksvið fjölskyldunnar: 4. verkefni

            • QuizBaksvið fjölskyldunnar: 5. verkefni

            • QuizBaksvið fjölskyldunnar: 6. verkefni

            • QuizBaksvið fjölskyldunnar: 7. verkefni

            • QuizBaksvið fjölskyldunnar: 8. verkefni

            • QuizBaksvið fjölskyldunnar: 9. verkefni

            • QuizBaksvið fjölskyldunnar: 10. verkefni

            • QuizBaksvið fjölskyldunnar: 11. verkefni

            • QuizBaksvið fjölskyldunnar: 12. verkefni

            • QuizBaksvið fjölskyldunnar: 13. verkefni

            • QuizBaksvið fjölskyldunnar: 14. verkefni

            • QuizBaksvið fjölskyldunnar: 15. verkefni

            • QuizBaksvið fjölskyldunnar: 16. verkefni

            • AssignmentBaksvið fjölskyldunnar: 1. rökræður

            • AssignmentBaksvið fjölskyldunnar: 1. Myndbandagreining

            • AssignmentBaksvið fjölskyldunnar- greindu villurnar

            • AssignmentRökræðuverkefni – Baksvið fjölskyldunnar

            • QuizÁst - Skilnaðir - stafræn myndbandagreining

          • Sambúðarform og jaðarhópar

          • Stjúptengsl

          • Fátækt og félagsleg staða

          • Frávik og félagsleg völd

          • Afbrotafræði

          • Kyn og kyngervi

          • Stjórnmál

        • abserh

        • inngafb

      • Grunnfærni

  • Close
    Toggle search input
  • Log in

Félagsfræði: Grunnur ...

Close
Toggle search input
  1. Home
  2. Courses
  3. Almennt nám
  4. innggrunn
  5. Baksvið fjölskyldunnar
  6. Baksvið fjölskyldunnar- greindu villurnar

Baksvið fjölskyldunnar- greindu villurnar

Completion requirements
  1. Nefndu villurnar
  2. Útskýrðu hvers vegna þetta er rangt og hvað er rétt
  3. Hver skrifaði textann
  4. Hvaðan kemur textinn
  5. Settu heimildina rétt upp

Umfjöllun um karla og konur

Í þessu verkefni lestu texta um félagsfræði. Í textanum eru þrjár goðsagnir/ villur sem þú ætlar að reyna að finna og útskýra hvers vegna upplýsingarnar séu rangar, hvort þú teljir að þetta sé almennt viðhorf á Íslandi og hvaða skoðun þú hefur á þessu atriði.

 

„Maaark“, og allir karlmenn, bæði inni á fótboltavöllunum og framan við risaskjáina á börum heimsins hoppa hver upp um annan og hlæja eða gráta og faðmast og klappa hver öðrum á bakið – bæði þétt og lengi.

Þær aðstæður sem lýst er hér að ofan eru með fáum sviðsmyndum þar sem það er viðurkennt fyrir karlmenn að sýna umhyggjusemi og væntumþykju í garð annara. Gjald þessarar karlmennsku er skelfilegt. Drengir og unglingar sem deyfa sig með neyslu langt umfram stúlkur, hræddir og ófærir um að leita sér hjálpar við andlegri vanlíðan. Sjálfsvíg ungra manna sem bugast undan lífinu með öllum sínum sársauka sem þeim var ekki kennt að bregðast við á réttum tíma. Skilnaðir ungra hjóna þar sem hann er ófær um að ræða tilfinningar sínar við konuna sem þarf enga ofurhetju, heldur bara mannveru sem sýnir umhyggju og áhuga á lífi hennar og barnanna.

Heimilisofbeldi þar sem hann reiðir upp hnefann í hverjum vanda, rétt eins og ofurhetjan forðum. Eins skilningssljór og mállaus eins og ædólið hans í æsku. Krabbamein sem uppgötvast alltof seint því að alvöru karlar kvarta ekki og eyða ekki dýrmætum launavinnutíma í læknisheimsóknir. Hjartaáföll á miðjum aldri þar sem karlmennskan leyfir ekki hjartastyrkjandi grát sem dregur úr hjartakvillum samkvæmt rannsóknum. Slíkur munaður er bara fyrir konur. Rannsóknir sýna samt sem áður að félagsleg og tilfinningaleg staða karla sé mun betri en kvenna þar sem kynbundinn launamunur skipti svo miklu máli í því samhengi.

Vissulega telja flestir að ekki eigi að mælast kynbundin launamunur sem mælist frá 10-15% má segja að þessi launamunur sé keyptur dýru gjaldi sé litið til gjalds karlmennskunnar. Karlar drekka rúmlega helmingi meira en konur og um 70% þeirra sem eru lagðir inn áfengismeðferð eru karlar og eru þrisvar sinnum líklegri til að þjást af áfengissýki. Um 58% karlmanna útskrifast úr framhaldsskóla um tvítugt meðan að hlutfallið hjá konum er um 83% sem bendir til að skólar og uppeldisstofnanir eru síður sniðnar að körlum. Í 66% tilvika eiga karlar frumkvæði að skilnaði, karlar eru betur undirbúnir fyrir skilnað en konur sem leiðir til þess að þeir eiga auðveldara með að takast á við skilnaði.

Tæplega 90% þeirra sem fremja afbrot eru karlar, þeir eru um 95% fanga, þeir eru fjórum sinnum líklegri til að fremja sjálfsvíg og farast mun oftar af slysförum. Karlar eru félagslega einangraðri en konur og karlar leita síður til heilbrigðiskerfisins eða sérfræðilækna. Stórt hlutfall þeirra sem eru fjárhagslega illa staddir eru einhleypir karlar. Þrátt fyrir að nú velji um 66% foreldra sameiginlega forsjá fara konur með forsjá í yfir 90% þeirra tilvika þar sem forsjá er ekki sameiginleg. Fyrir hverjar 109 stúlkur fæðast 100 drengir en kynjaskipting í þjóðfélaginu er 100 konur á móti 101 karli sem sýnir að karlar falla frá á undan konum.

Þetta skýrist m.a. af því að rúmlega 25% þeirra sem fremja sjálfsvíg eru karlar, almennt eru karlar einnig líklegri til að stunda áhættuhegðun, leita síður til læknis og eru 80% líklegri til að lenda í vinnuslysi en konur. Um 80% barna og unglinga sem barnavernd Reykjavíkur hefur afskipti af eru drengir og 85% þeirra sem kærðir eru vegna fíkniefnabrota eru karlar.

 

 

  • Sniðmát fyrir heimildaskráningu - nýtt.docx Sniðmát fyrir heimildaskráningu - nýtt.docx
    19 December 2025, 4:01 PM
Data retention summary