1. Heimildagreining: Einstaklingurinn í samfélaginu (gervigreind)
Completion requirements
1. skref – Þín eigin greining á heimild
Veldu eina heimild úr kaflanum og svaraðu eftirfarandi spurningum:
- Hvaða tegund heimildar er þetta? (t.d. bók, tímaritsgrein, vefsvæði, bókakafli, skýrsla)
- Hver er titill heimildarinnar?
- Hver er höfundur (einstaklingur eða stofnun)?
- Hvenær var hún gefin út?
- Um hvað fjallar heimildin? (50–100 orð)
- Vísar höfundur í aðrar heimildir? Ef svo er, hversu margar?
- Telur þú að þetta sé góð heimild? Rökstyddu (trúverðugleiki, gæði, hlutleysi, uppfærð o.s.frv.)
2. skref – Notaðu gervigreind til stuðnings
Notaðu AI (t.d. ChatGPT) til að:
– Finna nánari upplýsingar um heimildina eða höfundinn
– Athuga hvort heimildin hafi verið notuð í öðrum rannsóknum
– Fá álit á því hvort heimildin sé talin áreiðanleg eða hlutlæg
Mundu að bera svör AI saman við þín eigin – ekki taka þau sem lokaorð.
3. skref – Lokamat
Skrifaðu stutta samantekt (5–7 línur) þar sem þú:
– Lýsir hvernig þér gekk að greina heimildina
– Segir hvort AI hjálpaði þér að skilja hana betur
– Metur hvort þú myndir treysta heimildinni í eigin verkefni – og hvers vegna
Reglur
- Ekki má afrita texta beint úr AI
- Heimildagreiningin á að vera skrifuð með þínum eigin orðum
- Skilaverkefnið er svör við spurningum + lokamat í skrefi 3