Samfélag: 1. Heimasíðugreining
Á heimasíðu Hagstofu Íslands er að finna mikið magn upplýsinga um margt sem viðkemur íslensku samfélagi. Ofarlega á síðunni má finna yfirflokka fyrir íbúa, samfélag, atvinnuvegi, efnahag og umhverfi. Í þessu verkefni ætlum við að skoða fólkið í samfélaginu. Þú smellir á íbúar ( lengst til vinstri) og undir mannfjölda sérð þú þrjá flokka:
1. Hvernig hefur árleg breyting mannfjölda verið á Íslandi frá árinu 1735 til dagsins í dag? Hefur Íslendingum verið að fjölga eða fækka?
2. Hvaða áratug fjölgar Íslendingum mest?
3. Hver eru 5 stærstu sveitarfélög á Íslandi? Hversu hátt hlutfall Íslendinga býr á þessum stöðum (leggur saman fjöldan og deilir í heildarfjölda íbúa). Hvar er þitt sveitarfélag í röðinni.
4.-6. Hvernig hefur þróun erlendra ríkisborgara verið á Íslandi frá 2000 til dagsins í dag. Hvers vegna fækkaði þeim frá 2008 til 2012? Hvers vegna fjölgaði þeim svo ört frá 2014 til dagsins í dag? Hvað finnst þér um þessa þróun?