Félagsfræðilegar rannsóknaraðferðir: 1. Heimasíðugreining
Á heimasíðu Hagstofu Íslands er að finna mikið magn upplýsinga um margt sem viðkemur íslensku samfélagi.Ofarlega á síðunni má finna yfirflokka fyrir íbúa, samfélag, atvinnuvegi, efnahag og umhverfi. Í þessu verkefni ætlum við að skoða atvinnuvegi. Þú smellir á atvinnuvegi (í miðjunni) og undir ferðaþjónustu sérð þú fimm flokka:
1. Hvernig hefur fjöldi gistinátta breyst frá árinu 2001 til dagsins í dag? Hvað finnst þér um aukinn fjölda ferðamanna (lágmark 25 orð)
2. Hvernig hefur fjöldi launþega í ferðaþjónustu breyst frá árinu 2001 til dagsins í dag? Hvers vegna dróst ferðaþjónustan lítillega saman árið 2019 og hvers vegna varð hrun árið 2020?
3. Hvernig hefur fjöldi farþega í ferðaþjónustu breyst frá árinu 2008 til dagsins í dag?
4. Hvernig eru ferðavenjur eftir landshlutum? Hvað kann að skýra mismunandi tíðni?
5. Hvernig hefur hlutfall ferðaþjónustu af vergri landsframleiðslu (tekjum) breyst 2001 til dagsins í dag?
6. Telur þú að þessi síða sé trúverðug og gögnin sem birtast á síðunni séu áreiðanleg (hvers vegna eða hvers vegna ekki)?