Frumkvöðlar og siðferðisleg álitamál: Myndbandagreining
Alræði er tegund stjórnarfars þar sem ríkisvaldið hefur afskipti af flestum eða öllum þáttum mannlífsins, bæði í opinberu lífi og einkalífi.
Kommúnismi er hugmyndafræði efnahagsstefnu þar sem allir eru jafnir og deila öllu sameiginleg. Allar launatekjur færu í sameiginlegan sjóð líkt og að skattur væri 100% öll þjónusta væri ókeypis og öll framleiðsla miðaðist við þarfir heildarinnar og væri skipt jafnt á milli allra.
Kapítalismi er hugmyndafræði efnahagsstefnu sem byggir á eignarétti einstaklinga, markaðsfrelsi og samkeppni fyrirtækja og einstaklinga um hagnað. Í hreinum kapítalisma myndi allt vera í einkaeigu, engir skattar og greiða þyrfti fullt verð fyrir alla þjónustu eins og heilbrigðisþjónustu, skólagjöld, vegatolla o.s.frv.
Velferðarkapítalismi er hugmyndafræði félagslegrar efnahagsstefnu sem byggir á eignarétti einstaklinga, markaðsfrelsi og samkeppni mneð félagslegum áherslum. Þannig eru tekjur og vörur skattlagðar og renna skattarnir í ríkisjóð. Stjórnvöld deila út skattekjunum til borgaranna eftir þörfum með það að markmiði að jafna kjör íbúanna.
Flettu upp setningunni Kapítalismi og kommúnismi í bókinni og lestu þær tvær blaðsíður þar sem fjallað er um kapítalisma og kommúnisma í tengslum við skólaferðalag
Skólaferðalag
Kommúnismi: Allt sem við seljum fer í sameiginlegan sjóð.
Allt er sameiginlegt: Sjúkrahús, samgöngur, skólakerfið.
Kapítalismi: Allt sem við seljum fer í vasa þess sem sem selur.
Allt er einkarekið og við þurfum að borga fyrir allt, sjúkrahús, samgöngur og skólakerfið.
Velferðarkapítalismi: Hluti af tekjum fara í eigin vasa en hluti af tekjum og neyslu er skattlagt. Öllum er tryggðar lágmarkstekjur (framfærsla) og öllum ber skylda til að greiða hluta tekna í sameiginlegan sjóð.
Sá sem misnotar kommúnismann og tekur öll völd undir sig er alræðiskommúnisti.
Í þáttunum bara grín - mætast Georg Bjarnfreðarson og Hannes Hólmsteinn. Hannes er harður kapítalisti og Georg er alræðiskommúnisti.
1. Lýstu samskiptum Georgs og Hannesar - hvers vegna kallar Georg Hannes myrkrahöfðingjann (19:15)!
2. Hvers vegna er Georg alræðiskommúnisti (06:15)?
3. Hvernig tengist það starfsmannasjóðnum (01:30)?
4. Hvað er harður kapítalismi (frjálshyggja - neysluhyggja) eins og hugmyndir Hannesar Hólmsteins (sem kemur að taka bensín) endurspegla (05:40)?
5. Taktu dæmi!
6. Hvers vegna eru Georg og Hannes ósammála?
7. Hvers vegna eru Ólafur og Georg Ósammála?
8. Í myndbandinu er fjallað um að Ólafur Ragnar sé dæmi um neysluhyggju kapítalismans. Hvað er átt við með því (5:35)?
9. Georg Bjarnfreðarson minnist á Josef Stalín sem misnotaði hugmyndir Karl Marx og kom á alræðiskommúnisma í Sovétríkjunum. Hvað er átt við með því? (06:15)
10. Hvers vegna minna stjórnarhættir Georgs á stjórnarhætti Stalíns í Sovétríkjunum?
Þrjátíu ára valdatími Stalíns var tímabil samfelldrar og vaxandi harðstjórnar. Þegar alræðishyggja tuttugustu aldar er til umræðu, eða harðstjórnartilburðir til hægri og vinstri, fer því ekki hjá því að fólki finnist eðlilegt að leita skýringa í persónuleika harðstjórans. Eitt sem einkenndi Stalín er hversu nálægt honum mörg fórnarlömbin voru. Tugir eða hundruð þeirra sem teknir voru af lífi fyrir uppspunnar sakir á fjórða áratugnum voru, eða höfðu verið, nánir samstarfsmenn Stalíns til lengri eða skemmri tíma. Hann hlífði ekki heldur venslafólki sínu.