Skip to main content

Blocks

Skip Navigation

Navigation

  • Home

    • Site pages

      • My courses

      • Tags

    • My courses

    • Courses

      • Almennt nám

        • kennfel

          • Kenningar í félagsfræði

          • Ábendingar til kennara

          • Félagsfræðileg hugsun

          • Grunnur að skilningi á samfélaginu

          • Félagsfræðikenningar á skjánum

          • Samskiptakenningar

          • Kenningar og sjálfsmynd

          • Félagsleg lagskipting

          • Spegilmynd lagskiptingar

            • QuizLestrargreining - spegilmynd lagskiptingar

            • GameSpegilmynd lagskiptingar - falin mynd

            • GameSpegilmynd lagskiptingar - krossgáta

            • GameSpegilmynd lagskiptingar - dulmál

            • GameSpegilmynd lagskiptingar - villtu vinna milljón (1)

            • GameSpegilmynd lagskiptingar - villtu vinna milljón (2)

            • Quiz1. verkefni: Spegilmynd félagslegrar lagskiptingar

            • Quiz2. verkefni: Spegilmynd félagslegrar lagskiptingar

            • Quiz3. verkefni: Spegilmynd félagslegrar lagskiptingar

            • Quiz4. verkefni: Spegilmynd félagslegrar lagskiptingar

            • Quiz5. verkefni: Spegilmynd félagslegrar lagskiptingar

            • Quiz6. verkefni: Spegilmynd félagslegrar lagskiptingar

            • Quiz7. verkefni: Spegilmynd félagslegrar lagskiptingar

            • AssignmentVerkefni: Samfélagsgreining á Titanic

            • AssignmentSpeglimynd lagskiptingar: Kvikmyndarýni

          • Kenningar og kynhlutverk

          • Kenningar og kynjamisrétti

          • Kenningar og kvikmyndir

        • almennfel

        • felhvit

        • felhvitII

        • Sakamál

        • rannfel

        • kennrann

        • felloft

        • félnút

        • afbalmenn

        • heilsufél

        • innggrunn

        • abserh

        • inngafb

      • Grunnfærni

  • Close
    Toggle search input
  • Log in

Kenningar í félagsfr ...

Close
Toggle search input
  1. Home
  2. Courses
  3. Almennt nám
  4. kennfel
  5. Spegilmynd lagskiptingar
  6. Verkefni: Samfélagsgreining á Titanic

Verkefni: Samfélagsgreining á Titanic

Completion requirements

Verkefni: Samfélagsgreining á Titanic

Lýsing:

Nemendur skoða kaflann í samhengi við myndina Titanic og tengja félagsfræðileg hugtök, kenningar og persónur við eigið líf og samfélagið í dag. Þeir vinna bæði sjálfstætt og í hópum að því að skapa skilning á félagslegri lagskiptingu, valdaójafnvægi og áhrifum stétta í samfélögum, bæði fyrr og nú. Lokaafurð verkefnisins er ppt kynning.

 

Skref verkefnisins:

1. Hópaskipting og hlutverk:

Nemendum er skipt í hópa. Hver hópur tekur fyrir eitt af eftirfarandi þemum:

  • Félagsleg lagskipting og stéttir
  • Vald og auðvald
  • Kynbundin mismunun
  • Átakakenningar vs. samvirknikenningar
  • Félagslegur hreyfanleiki
  • Mismunun og forréttindi

 

2. Greining persóna úr Titanic:

Hver hópur velur tvær persónur úr myndinni og svarar eftirfarandi spurningum:

  • Hvaða stéttarstöðu táknar persónan?
  • Hvernig hafa stéttarstaða og samfélagsreglur áhrif á skoðanir eða hegðun?
  • Hvernig tengist persónan félagsfræðilegum hugtökum úr kaflanum? (t.d. átakakenningar, kapítalismi, siðrof, innvensl o.s.frv.)

 

3. Hugmyndaflug og nútímatenging:

  • Hver hópur býr til leikþátt þar sem nemendur leika tiltekna senu úr Titanic sömu hugtök birtast í nútímasamhengi, t.d. í íslensku skólakerfi, á vinnumarkaði eða í alþjóðlegum samfélagsmálum.
  • Þeir þurfa að tengja söguna við hugtökin úr kaflanum og gera grein fyrir því hvernig þessar hugmyndir birtast í nútímanum.

 

4. Sköpunarþáttur:

  • Hópurinn býr til sjónrænt efni (PowerPoint) sem útskýrir tengingar á milli persóna í Titanic og félagsfræðilegra kenninga.
  • Sjónræna efnið skal innihalda stuttar lýsingar á hugtökum, myndir eða teikningar af persónum úr Titanic og skýringar á samhengi þeirra.

 

5. Kynning:

  • Hver hópur kynnir niðurstöður sínar í 5-7 mínútur fyrir bekkinn.
  • Í kynningunni þurfa þeir að útskýra hvernig persónur úr Titanic endurspegla félagsfræðileg hugtök og hvernig þessar persónur geta táknað persónur eða lönd í nútímasamfélagi birtist í nútímasamfélagi. Að lokum senda hóparnir inn ppt kynningu í skilahólfið.

 

Markmið verkefnisins:

  • Efla hæfni nemenda í greiningu og beitingu félagsfræðilegra hugtaka.
  • Skapa tengsl á milli bóklegs efnis og raunverulegra dæma úr daglegu lífi.
  • Þjálfa sköpunargáfu, samvinnu og kynningarfærni.

 

Útkoma:

  • Nemendur öðlast betri skilning á félagsfræðilegum hugtökum í samhengi við Titanic og sjá hvernig stéttir, vald og kynbundin mismunun birtast bæði í fortíð og nútíð.
  • Þeir þjálfast í að miðla flóknum hugmyndum á einfaldan hátt og tengja þær við eigin reynslu.

 

Data retention summary