Félagsfræðileg hugsun - fjölmiðlagreining 1
Farðu inn á einhvern íslenskan vefmiðil (t.d. mbl.is - dv.is - stundin.is - visir.is - frettabladid.is - ruv.is)
Finndu frétt um fólk sem tengist því hvernig félagslegir kraftar hafa áhrif á líf þeirra sem koma fyrir í fréttinni.
1. Hvaða fólk kemur fyrir í fréttinni?
2. Hvernig er þetta fólk?
3. Hvaðan er þetta fólk?
4. Hvað einkennir líf þess?
Meðal landsframleiðsla á mann í heiminum er um 22.000 dollarar á einstakling á ári sem gera um 2.800.000 milljónir á hvern einstakling fyrir skatta. Á Íslandi er hann um 65.000 dollarar á einstakling sem gera um 8.200.000 krónur fyrir skatta. Hæstur er kaupmáttur í Singapore um 130.000 sem gera meira en 16 milljónir á hvern einstakling fyrir skatta og lægstur er hann í Burundi, sem er fátækt ríki í Afríku, um 836 dollarar sem gera um 106.000 krónur á einstakling fyrir skatta.
5. Telur þú að þetta fólk búi við góð kjör sé mið tekið af heiminum í heild (rökstyðja)?
6. Telur þú að þetta fólk búi við góð kjör samanborið við það land sem það býr í (rökstyðja)?
7. Hvernig er líklegt að félagsleg staða (hvar þetta fólk fæddist hafi haft áhrif á líf þeirra (útskýra)?