Tæknideild lögreglunnar - Tæknideild lögreglunnar (gervigreind)
Verkefni: Tæknideild lögreglunnar – hlutverk og rannsóknaraðferðir
Markmið
Að nemendur öðlist skilning á hlutverki tæknideildar lögreglunnar, helstu rannsóknum hennar og því hvers vegna nákvæmar rannsóknir eru mikilvægar – jafnvel þegar játning liggur fyrir. Nemendur vinna úr texta með eigin orðum, fá aðstoð frá gervigreind og meta gildi þeirrar aðstoðar í lokin.
Þriggja skrefa verkefni
1. Sjálfstæð vinna (án gervigreindar)
Lestu vel kaflann um Tæknideild lögreglunnar. Svaraðu síðan eftirfarandi spurningum í eigin orðum – með áherslu á nákvæmni og skýrleika:
- Hvert er hlutverk tæknideildar lögreglunnar?
- Hvað var sérstaklega athyglisvert við morðið í Hraunbæ árið 2013?
- Telur þú að Sérsveitin hefði getað brugðist öðruvísi við í því máli? Rökstuddu.
- Hvers vegna var rannsókn andlátsins í Hraunbæ flókin fyrir tæknideildina?
- Hvernig eru skotstefnumælingar framkvæmdar?
- Af hverju skipta skotstefnumælingar máli í rannsókn mála?
- Nefndu dæmi um atvik eða brot þar sem tæknideildin er kölluð á vettvang.
- Hvers vegna skiptir máli að tæknideild rannsaki öll ummerki, jafnvel þegar játning liggur fyrir?
- Hvernig tekst að greina skóför sem ekki sjást með berum augum?
- Hvernig greina rannsóknaraðilar blóð sem er ósýnilegt?
- Hvernig er unnið með fingraför á vettvangi?
2. Aðstoð með gervigreind
Þegar þú hefur svarað spurningunum sjálfur geturðu notað gervigreind til að fá aðstoð, dýpri útskýringar eða ný sjónarhorn. Þú gætir spurt:
- „Hvað gerir tæknideild lögreglunnar á vettvangi glæpa?“
- „Af hverju skiptir máli að rannsaka sönnunargögn þótt fólk játi?“
- „Hvernig virkar skotstefnumæling?“
- „Hvað er Luminol og hvernig er það notað við blóðgreiningu?“
- „Geturðu útskýrt hvernig fingrafaragreining fer fram?“
Gættu að því að nýta útskýringar AI til að dýpka skilning þinn – en skrifa áfram með eigin orðum.
Samanburður og niðurstaða
Skrifaðu stuttan lokaþátt (50–80 orð) þar sem þú:
- Berð saman eigin svör og það sem gervigreind bætti við.
- Útskýrir hvort hún hjálpaði þér að skilja efnið betur – eða hvort eitthvað virtist villandi eða ónákvæmt.