Skip to main content

Blocks

Skip Navigation

Navigation

  • Home

    • Site pages

      • My courses

      • Tags

    • My courses

    • Courses

      • Almennt nám

        • kennfel

        • almennfel

        • felhvit

        • felhvitII

        • Sakamál

        • rannfel

        • kennrann

        • felloft

        • félnút

        • afbalmenn

        • heilsufél

        • innggrunn

        • abserh

        • inngafb

          • Afbrotafræði

          • Inngangur að afbrotafræði

          • Kenningar í afbrotafræði

          • Rannsóknir í afbrotafræði

          • Réttarvörslukerfið

          • Réttarvörslukerfið í Bandaríkjunum

            • QuizRéttarvörslukerfi Bandaríkjanna - lestrarkönnun

            • GameRéttarvörslukerfið í Bandaríkjunum - viltu vinna m...

            • QuizRéttarvörslukerfi Bandaríkjanna: 1. verkefni

            • QuizRéttarvörslukerfi Bandaríkjanna: 2. verkefni

            • QuizRéttarvörslukerfi Bandaríkjanna: 3. verkefni

            • QuizRéttarvörslukerfi Bandaríkjanna: 4. verkefni

            • QuizRéttarvörslukerfi Bandaríkjanna og á Íslandi - myn...

            • Assignment1. Samanburðargreining

          • Arfleifð Alcatraz

          • Afbrotatölfræði

          • Áhrifþættir afbrota

          • Afbrot og félagsleg staða

          • Fórnarlambafræði

          • Heimilisofbeldi

          • Hvíflibbafbrot

          • Afbrot í fjölmiðlum

          • Tæknideildin

          • Stafræn afbrot

          • Leiðir til að draga úr afbrotum

      • Grunnfærni

  • Close
    Toggle search input
  • Log in

Inngangur að afbrota ...

Close
Toggle search input
  1. Home
  2. Courses
  3. Almennt nám
  4. inngafb
  5. Réttarvörslukerfið í Bandaríkjunum
  6. 1. Samanburðargreining

1. Samanburðargreining

Completion requirements

Síðustu daga höfum við farið yfir réttarvörslukerfi tveggja ólíkra landa, sem við þekkjum e.t.v. flest einna best út frá birtingarmynd þeirra í dægurmenningu. 

Nú er lag að bera þessi tvö kerfi saman og ætlum við að gera það með því að finna eitt íslenskt dómsmál úr samtímanum og færa það inn í bandaríska réttarvörslukerfið í ríki að eigin vali. 

1. Veldu íslenskt morðmál - skrifaðu um málið - segðu frá hvernig dæmt var í málinu.

2. Veldu fylki í Bandaríkjunum. Skrifaðu um það og segðu frá því hvers vegna þú valdir þetta fylki.

3. Fjallaðu um hvaða gerð af morði sé um að ræða. Er þetta 1. gráðu morð - 2. gráðu morð - 3. gráðu morð eða manndráp af gáleysi? Hvers vegna? Hvaða dóm mynduð þið sem dómarar gefa gerandanum ef þið hefðuð dæmt hann í því fylki sem þið völduð!

4. Hvað finnst ykkur um dóminn eins og hann var á Íslandi miðað við þá niðurstöðu sem þið fenguð í fylkinu í Bandaríkjunum?

Þið þurfið að uppfylla eftirfarandi: 

  • Þið þurfið að velja og rökstyðja val á íslensku sakamáli (best að taka fyrir morðmál). Hér þarf einnig að greina sakamálið og hverjar málalyktir urðu (dómur-frávísun-sýkna). 
  • Þið þurfið að velja og rökstyðja val á fylki sem þið ætlið að kynna ykkur og verður sögusvið ykkar greiningar. 
  • Þið þurfið að fara yfir það hvernig málið færi í gegn um kerfið sem þið völduð og hverjar málalyktir væru. 
  • Að lokum eigið þið að bera ykkar niðurstöðu saman við niðurstöðu sakamálsins í íslenska réttarvörslukerfinu. 

Matsþættir: 

  • Rökstuðningur á vali á efnisþáttum – íslenska málinu sem þið völduð og fylkinu (20%) – Hversu vel rökstyðjið þið val ykkar og hversu vel hentar það fyrir verkefnið 
  • Gæði samanburðar (20%) – Hversu tæmandi og lýsandi er samanburðurinn – hversu vel þið setjið málið inni í þann refsiramma sem er í fylkinu.
  • Niðurstaða  (20%) – Hversu vel greinið þið frá niðurstöðum ykkar sem mótuð er af kerfinu sem þið völduð. Hvernig segið þið frá niðurstöðunum og hvers vegna þið komust að þessari niðurstöðu.  
  • Samantekt ykkar og ígrundun um niðurstöður. Hver teljið þið að eðlileg niðurstaða hefði verið og hvers vegna. Hvað fannst ykkur um þetta verkefni? (rökstuðningur)? (20%) 
  • Framsetning og lengd (10%) 

Mögulegar heimildir 

State Criminal Law - FindLaw 

List of punishments for murder in the United States - Wikipedia 

Morð á Íslandi

Ferli sakamála í Bandaríkjunum eins og komið er inn á í bókinni.

 

Data retention summary