Kenningar í afbrotafræði: Heimasíðugreining (gervigreind)
Completion requirements
Verkefni: Afbrotafræðikenningar – sjálfstæð greining og notkun gervigreindar
Farðu inn á: https://www.criminology.com/understanding-criminology-theories/
Skref 1 – Sjálfstæð vinna (án AI)
Veldu tvær kenningar sem fjallað er um á síðunni og:
- Lýstu hverri kenningu í minnst 40 orðum.
- Gefðu þeim íslenskt heiti og útskýrðu af hverju það er lýsandi, og af hverju það er gagnlegt að nota lýsandi heiti (minnst 40 orð).
- Taktu raunverulegt dæmi þar sem kenningarnar gætu birst í samfélaginu (minnst 40 orð).
- Tengdu aðra kenninguna við íslenska frétt um afbrot (minnst 40 orð).
- Skrifaðu lokagreiningu um verkefnið sjálft (minnst 50 orð):
- Hvað fannst þér um verkefnið og hvers vegna?
- Hvernig hjálpaði það þér að skilja kenningarnar?
- Áttu hugmynd að öðru sambærilegu verkefni?
Skref 2 – Aðstoð með gervigreind
Nú máttu fá aðstoð frá ChatGPT eða sambærilegri AI þjónustu til að:
- Útskýra kenningar dýpra eða með öðrum orðum
- Fá hugmyndir að íslenskum fréttum sem tengjast tiltekinni kenningu
- Skoða raunveruleg dæmi frá öðrum löndum
- Hjálpa við að orða lýsandi íslensk heiti og rök fyrir þeim
Ekki afrita svör beint frá gervigreind – skrifaðu með þínum eigin orðum og gagnrýninni hugsun.
Skref 3 – Samanburður og samantekt
Skrifaðu stutta samantekt þar sem þú:
- Berð saman eigin svör og innsýn sem AI bætti við
- Lýsir því hvernig AI hjálpaði þér að hugsa öðruvísi eða útfæra betur
- Segir frá því hvað þú lærðir um kenningar og tengingu þeirra við raunveruleikann
Markmið verkefnisins
- Að efla skilning á afbrotafræðikenningum
- Að læra að tengja fræði við fréttir og samfélagið
- Að nýta gervigreind með gagnrýnum hætti til að dýpka eigin vinnu