Skip to main content

Blocks

Skip Navigation

Navigation

  • Home

    • Site pages

      • My courses

      • Tags

    • My courses

    • Courses

      • Almennt nám

        • kennfel

        • almennfel

        • felhvit

        • felhvitII

        • Sakamál

        • rannfel

        • kennrann

        • felloft

          • Félagsfræði umhverfis og loftslagsbreytinga

          • Söguleg þróun loftslagsmála

          • Vísindi og loftslagsafneitun

          • Kenningar og loftslagsbreytingar

          • Lýðfræði og loftslagsbreytingar

          • Félagsleg áhrif loftslagsbreytinga

          • Flótti undan loftslagsvandanum

          • Neysluhyggja og samfélagið

          • Óþarfi lúxus og kolefnisspor

          • Stjórnmál og loftslagsbreytingar

          • Alþjóðapólitík og stefnumótun

          • Alþjóðleg samvinna í matvælaframleiðslu

          • Ísland og loftslagsmál

          • Tækni og grænar lausnir

            • GameTækni og grænar lausnir - krossgáta

            • GameTækni og grænar lausnir - dulmál

            • GameTækni og grænar lausnir - hengimaður

            • GameTækni og grænar lausnir - snákaspil

            • AssignmentLausn eða áskorun – Hugtakaleikur með spurningum o...

            • QuizTækni og grænar lausnir: Lestrargreining

          • Heilsufarsleg áhrif loftslagsbreytinga

          • Siðfræði og ábyrgð

          • Loftslagsbreytingar og atvinnulíf

          • Menning og listir í loftslagsbaráttunni

          • Hlutverk trúarbragða og heimspeki

          • Ungt fólk og framtíðin

          • Framtíðar­sýn og framtíðarmyndir

          • Aðgerðaáætlun fyrir almenning

          • Fyrirtæki og sjálfbær framleiðsla

          • Carbfix

          • Loftslagsverkfræði og tæknilausnir

          • Topic 25

          • Topic 26

          • Topic 27

        • félnút

        • afbalmenn

        • heilsufél

        • innggrunn

        • abserh

        • inngafb

      • Grunnfærni

  • Close
    Toggle search input
  • Log in

Félagsfræði loftslag ...

Close
Toggle search input
  1. Home
  2. Courses
  3. Almennt nám
  4. felloft
  5. Tækni og grænar lausnir
  6. Lausn eða áskorun – Hugtakaleikur með spurningum o...

Lausn eða áskorun – Hugtakaleikur með spurningum og ígrundun

Completion requirements
Opened: Tuesday, 21 October 2025, 1:35 PM
Due: Sunday, 26 October 2025, 11:35 PM

Lausn eða áskorun – Hugtakaleikur með spurningum og ígrundun - Mentimeter

Leikreglur:
Kennari les upp hvert hugtak eða lýsingu – nemendur svara með:

  • „Lausn!“
  • „Áskorun!“
  • „Bæði!“
    – og rökstyðja svar sitt stuttlega. Þetta má gera í hópum eða með gervigreindarhjálp í verkefnavinnu.

 

Dæmi um leikatriði:

  1. Gervigreind:
    Getur hjálpað okkur að greina gögn og finna betri lausnir í loftslagsmálum. En hvað með orkuna sem fer í að þjálfa líkönin? Lausn, áskorun – eða bæði?
  2. Snjallborgir:
    Hámarka orkunotkun, stjórna auðlindum og draga úr sóun. En krefjast líka mikils stofnkostnaðar og gagnaöflunar. Hvað segir þú?
  3. Kolefnisbinding:
    Er aðferð til að fanga og geyma CO₂. Er það örugg lausn – eða skammtímatæknilausn sem frestar erfiðari mótvægisaðgerðum og veldur grænþvotti?
  4. Sjálfbær efni og vistvænar umbúðir:
    Geta dregið úr plastnotkun og sóun. En eru þau aðgengileg öllum? Hver er staðan á Íslandi?
  5. Orkunotkun gagnavera:
    Gagnaver sem knýja gervigreind eru orkufrek. Er hægt að nýta græna orku til að minnka áhrifin – eða verður þetta nýtt vandamál?

 

Svo koma „orkubyltingar hugtökin“:

  1. Vetni og grænt vetni:
    Vetni losar aðeins vatn við bruna – en þarf mikla orku til að framleiða. Hentar best fyrir stóra flutninga. Lausn eða áskorun?
  2. Sólarorka og vindorka:
    Hreinar og endurnýjanlegar – en hvernig nýtast þær á Íslandi? Er það möguleiki eða dýr tilraun?
  3. Rafgreining:
    Aðferð til að framleiða grænt vetni. En er hún orkunýtin? Er hægt að gera þetta í stórum skala?

 

Loks „borgar-hugtökin“:

  1. Sjálfbær borgarhönnun og kolefnislausar borgir:
    Þétt byggð, græn svæði, vistvæn byggingarefni – þetta hljómar vel. En hvað þarf til að þetta verði að veruleika?
  2. Grænar samgöngur, almenningssamgöngur og Borgarlínan:
    Eru þetta raunverulegir valkostir fyrir fólk – eða bara falleg framtíðarsýn?
  3. Vistvænar byggingar og snjallorkukerfi:
    Byggingar sem hannaðar eru með sjálfbærni í huga – dýr lausn eða nauðsynleg fjárfesting?
  4. Endurnýjanleg orka:
    Ísland á nóg af henni – en er hún nýtt á réttan hátt? Hvað gæti komið í staðinn fyrir álframleiðslu?

 

Niðurstaða og næstu skref:

  • Nemendur velja hugtak sem þeim fannst áhugaverðast og skrifa hugleiðingu:
    „Af hverju tel ég þetta vera lausn, áskorun eða bæði?“
  • 100 til 200 orð.

 

Data retention summary