Skip to main content

Blocks

Skip Navigation

Navigation

  • Home

    • Site pages

      • My courses

      • Tags

    • My courses

    • Courses

      • Almennt nám

        • kennfel

        • almennfel

        • felhvit

        • felhvitII

        • Sakamál

        • rannfel

        • kennrann

        • felloft

          • Félagsfræði umhverfis og loftslagsbreytinga

          • Söguleg þróun loftslagsmála

          • Vísindi og loftslagsafneitun

          • Kenningar og loftslagsbreytingar

          • Lýðfræði og loftslagsbreytingar

          • Félagsleg áhrif loftslagsbreytinga

          • Flótti undan loftslagsvandanum

          • Neysluhyggja og samfélagið

          • Óþarfi lúxus og kolefnisspor

          • Stjórnmál og loftslagsbreytingar

            • GameStjórnmál og loftslagsbreytingar - krossgáta

            • GameStjórnmál og loftslagsbreytingar - dulmál

            • GameStjórnmál og loftslagsbreytingar - hengimaður

            • GameStjórnmál og loftslagsbreytingar - snákaspil

            • AssignmentBréf til ráðherra

            • QuizStjórnmál og loftslagsbreytingar: Lestrargreining

            • QuizStjórnmál og loftslagsbreytingar - orðademantur

            • QuizBefore the flood - 110 til 130

            • QuizEinkunnagjöf ungra umhverfissinna fyrir Alþingisko...

          • Alþjóðapólitík og stefnumótun

          • Alþjóðleg samvinna í matvælaframleiðslu

          • Ísland og loftslagsmál

          • Tækni og grænar lausnir

          • Heilsufarsleg áhrif loftslagsbreytinga

          • Siðfræði og ábyrgð

          • Loftslagsbreytingar og atvinnulíf

          • Menning og listir í loftslagsbaráttunni

          • Hlutverk trúarbragða og heimspeki

          • Ungt fólk og framtíðin

          • Framtíðar­sýn og framtíðarmyndir

          • Aðgerðaáætlun fyrir almenning

          • Fyrirtæki og sjálfbær framleiðsla

          • Carbfix

          • Loftslagsverkfræði og tæknilausnir

          • Topic 25

          • Topic 26

          • Topic 27

        • félnút

        • afbalmenn

        • heilsufél

        • innggrunn

        • abserh

        • inngafb

      • Grunnfærni

  • Close
    Toggle search input
  • Log in

Félagsfræði loftslag ...

Close
Toggle search input
  1. Home
  2. Courses
  3. Almennt nám
  4. felloft
  5. Stjórnmál og loftslagsbreytingar
  6. Bréf til ráðherra

Bréf til ráðherra

Completion requirements

Verkefni: Bréf til ráðherra 

Leiðbeiningar til nemenda

Þú átt að skrifa opið bréf til ráðherra sem gæti verið birt í fjölmiðlum eða á samfélagsmiðlum. Í bréfinu áttu að beina sjónum þínum að stöðu loftslagsmála og kalla eftir ábyrgð og aðgerðum. Bréfið skal byggja á efni bókarinnar, verkefna eða þinni gagnaöflun og nýta á hugtök og dæmi sem þar koma fram.

 Þú getur til dæmi skoðað þessar greinar eða þessa sem dæmi um greinaskrif. Hér má finna heimild um markmið Íslands og hérna má finna útblástur landsins og hér á hvern íbúa. Hér má finna útblástur annara norðurlanda og hér á hvern íbúa. Hér má finna neyslutengda losun á Norðurlöndum og neyslutengda losun Íslands.

Verkefnismarkmið

  • Að samþætta hugtök og efni um pólitík og loftslagsmál.
  • Að nýta gagnrýna hugsun til að benda á vanda og leggja til lausnir.
  • Að æfa ritun sem byggir á siðferðislegri afstöðu og rökum.

 

Þrjú lykilatriði sem gætu komið fram í bréfinu:

  1. Pólitísk skammsýni
    • Af hverju er hún hættuleg í loftslagsmálum?
    • Tengdu við efni um kosningakerfi, ábyrgðarflótta og skort á framtíðarsýn.
  2. Hagsmunagæsla
    • Hvaða hópar hafa hagsmuni af því að hindra aðgerðir?
    • Nefndu dæmi um stórfyrirtæki, orkuiðnað eða áhrifavald sem haft getur áhrif.
  3. Alþjóðlegar skuldbindingar
    • Hvað hefur Ísland (eða annað land sem þú velur) skuldbundið sig til að gera?
    • Er landið að standa við skuldbindingarnar? Hvers vegna/hvers vegna ekki?

 

Uppbygging bréfsins

  • Ávarp: Tiltekinn ráðherra (t.d. Umhverfis-, orku- eða forsætisráðherra).
  • Inngangur: Stutt útskýring á áhyggjum þínum og ástæðu bréfsins.
  • Meginmál: Greindu vandann, rökstyddu með hugtökum og dæmum úr kaflanum.
  • Lok: Kallaðu eftir aðgerðum og bentu á lausnir.
  • Undirskrift: Þín nöfn eða t.d. Höfundur er umhverfissinni eða eitthvað svipað

 

Notaðu að minnsta kosti 3 af eftirfarandi hugtökum en þú mátt nota öll hugtök í bókinni

  • Skammsýni
  • Hagsmunagæsla
  • Loftslagsafneitun
  • Alþjóðasamvinna
  • Ábyrgðarflótti
  • Lausnamiðuð nálgun
  • Samfélagsleg ábyrgð
  • Réttlát umskipti

 

Dæmi sem má nýta úr kaflanum

  • Loftslagsafneitun eða tafir stjórnvalda í aðgerðum.
  • Þátttaka Íslands í alþjóðlegum samningum (t.d. Parísarsamningurinn).
  • Umræðan um að Ísland sé „lítið land“ og hafi takmörkuð áhrif – afsökun eða áskorun?
  • Tengsl stjórnmála við hagsmunahópa eða atvinnugreinar sem standa gegn breytingum.

 

Valmöguleikar í lokin

  • Þú mátt skrifa bréfið í eigin nafni, sem ímyndaður ungur aðgerðasinni eða fulltrúi framtíðarinnar.
  • Þú mátt velja annað land og miða bréfið við stjórnmálamann í því landi, ef þú vilt skoða alþjóðlegt samhengi.
  • 12 punkta letur texta
  • 16 punkta fyrirsagnir
  • Jafna textann - (justify)
  • Miðja fyrirsagnir - (center)
  • 1.5 línubil
  • Inndraga eftir greinarskil

 

  • Opið bréf til umhverfis- og loftslagsráðherra.docx Opið bréf til umhverfis- og loftslagsráðherra.docx
    3 December 2025, 8:58 PM
  • Sniðmát fyrir heimildaskráningu - nýtt.docx Sniðmát fyrir heimildaskráningu - nýtt.docx
    3 December 2025, 8:58 PM
Data retention summary