Hver ber ábyrgð? – Losun og réttlæti í loftslagsmálum
Hver ber ábyrgð? – Losun og réttlæti í loftslagsmálum
Lýsing verkefnis:
Í þessu verkefni skoðar þú þrjár mismunandi leiðir til að mæla losun gróðurhúsalofttegunda og notar hugtök úr kaflanum til að rökstyðja eigin túlkun á því hvað gögnin segja um neyslu, réttlæti og ábyrgð. Þú mátt nýta gervigreind til aðstoðar – ef þú gerir það, skaltu skrá hvernig og hvers vegna.
Gögn sem þú átt að vinna með:
- Heildarlosun á hvert land
Annual CO₂ emissions per country (map) - Losun á hvern einstakling
CO₂ emissions per capita - Neyslutengd losun á hvern einstakling (2022)
Consumption-based CO₂ per capita
Leiðbeiningar:
- Skoðaðu öll þrjú kortin og veldu tvö lönd sem þér finnst áhugaverð til samanburðar (t.d. Kína og Kanada, eða Indland og Bandaríkin).
- Hugleiddu og skráðu:
- Hvernig kemur hvert land út í þessum þremur mælingum?
- Hvað segja gögnin um neyslu og ábyrgð í hverju landi?
- Hvaða munur kemur í ljós þegar við skoðum neyslutengda losun í stað heildarlosunar?
- Veldu fjögur hugtök úr listanum hér að neðan. Útskýrðu þau með eigin orðum og tengdu við gögnin og túlkun þína á samhengi loftslagsmála.
Hugtök (val um fjögur – eitt úr hverjum flokki ef mögulegt):
Ójöfnuður og hnattræn ábyrgð
Ójöfnuður milli ríkja – Þróunarlönd – Iðnvædd lönd – Siðferðileg ábyrgð – „Tap og tjón“ – Græni loftslagssjóðurinn – Losun og ábyrgð – Heildarlosun – Losun á mann – Neyslubundin losun – Kolefnisfótspor – Kaupmáttur og losun – Neyslutengd losun Íslands
Áhrif loftslagsbreytinga
Útblástur – Þurrkar – Flóð – Áhrif á samfélög – Umhverfisflóttamenn – Lífsviðurværi – Búseta – Fátækt – Fólksflutningar – Flóðvarnir
Viðbrögð og lausnir samfélaga
Sjálfbærni – Samfélagsviðbrögð og lausnir – Fridays for Future – COP-ráðstefnur – Grasrótarhreyfingar – Alþjóðlegt samstarf – Grænar lausnir – Endurnýjanleg orka
Neysla, atvinnuhættir og lífsstíll
Atvinnuhættir og lífsstíll – Landbúnaður – Sjávarútvegur – Ferðaþjónusta – Sjálfbærar samgöngur – Lúxusneysla – Innflutningur vara
Menntun og vitund
Menntun og vitund – Vitundarvakning – Menntun um loftslagsbreytingar – Deiling þekkingar
Ritunarleiðbeiningar:
- Inngangur: Kynntu löndin sem þú valdir og hvert verkefnið snýst um.
- Meginmál:
- Berðu saman gögnin – hvaða munur kemur fram í mælingunum?
- Tengdu gögnin við valin hugtök.
- Sýndu gagnrýna hugsun um ábyrgð, neyslu og samfélagslega þætti.
- Lokaorð: Hvaða ályktun dregur þú um réttlæti og ábyrgð í loftslagsmálum?
Lengd: 250–350 orð
Gervigreind: Ef þú notaðir gervigreind, skaltu skrifa í lok textans hvernig og hvers vegna þú notaðir hana.
Settu upp verkefnið sem kahoot eða ppt og kynntu fyrir bekknum.
Markmið verkefnis:
- Að skilja muninn á mismunandi losunarmælingum
- Að túlka gögn í félagsfræðilegu samhengi
- Að beita hugtökum gagnrýnið og rökstyðja sjónarmið
- Að setja upp skýra og vel skipulagðri ritun
- Að setja upp og kynna efnið