Skip to main content

Blocks

Skip Navigation

Navigation

  • Home

    • Site pages

      • My courses

      • Tags

    • My courses

    • Courses

      • Almennt nám

        • kennfel

        • almennfel

        • felhvit

        • felhvitII

        • Sakamál

        • rannfel

        • kennrann

        • felloft

        • félnút

          • Félagsfræði í nútímanum - ábendingar til kennara

          • Félagsfræðin sem gagnrýnin vísindagrein

          • Klassískar kenningar í nútímanum

          • Gagnrýnin sýn á vald og veruleika

          • Framandi félagslegir töfrar

          • Stafræn bylting

          • Gervigreind og samfélagið

          • Framtíðin með gervigreind

            • QuizFramtíðin með gervigreind - lestrarkönnun

            • GameFramtíðin með gervigreind - krossgáta

            • GameFramtíðin með gervigreind - snákar

            • GameFramtíðin með gervigreind - dulmál

            • AssignmentFramtíðin með gervigreind: myndband og túlkun

            • QuizTerminator - spurningar úr myndinni

            • FileGervigreind - Skynet - Terminator

            • AssignmentSkynet – framtíð gervigreindar eða vísindaskáldska...

          • Valdleikir tæknheimsins

          • Félagssálfræði

          • Íþróttafélagsfræði

          • Líkamsmyndir

          • Vinnumarkaður og hnattvæðing

          • Innflytjendur og flóttamenn

          • Loftslagsbreytingar og sjálfbærni

        • afbalmenn

        • heilsufél

        • innggrunn

        • abserh

        • inngafb

      • Grunnfærni

  • Close
    Toggle search input
  • Log in

Félagsfræði í nútíma ...

Close
Toggle search input
  1. Home
  2. Courses
  3. Almennt nám
  4. félnút
  5. Framtíðin með gervigreind
  6. Framtíðin með gervigreind: myndband og túlkun

Framtíðin með gervigreind: myndband og túlkun

Completion requirements

Skref 1 – Veljið sviðsmynd

Hópurinn velur eina sviðsmynd til að byggja handrit sitt á:

  • Kennslustofa – mismunandi aðgangur að tækni
    Einhverjir nemendur hafa tölvur, síma eða AI-tól og ná betri árangri, á meðan aðrir sitja eftir án aðstoðar.
  • Sýnið hvernig ólíkur aðgangur hefur áhrif á nám og möguleika til að standa sig.
  • Vinnumarkaður – starfsmaður með AI vs. starfsmaður án AI
    Tveir starfsmenn sinna svipuðum verkefnum. Sá sem hefur aðgang að AI vinnur hraðar og fær hrós, hinn þarf að vinna miklu lengur og lendir jafnvel í vanda.
  • Sýnið hvernig tæknin getur skapað bæði forskot og mismunun á vinnustað.
  • Heimilisaðstæður – nettenging og tækni
    Ein fjölskylda á nýja tölvu og góða nettengingu, önnur hefur hvorki net né ný tæki. Börnin í annarri fjölskyldunni geta notað AI í námi, en hin ekki.
  • Sýnið hvernig félagsleg staða og aðgengi að tækni hefur áhrif á nám og daglegt líf.
  • Ríkt land vs. þróunarland – alþjóðlegt samhengi
    Í ríku landi eru skólar og fyrirtæki með fullan aðgang að nýjustu AI-kerfum. Í þróunarlandi eru nemendur og starfsmenn án sambærilegra verkfæra.
  • Sýnið hvernig stafræn gjá getur aukið ójöfnuð milli þjóða.
  • Skyndileg lokun á AI – nemandi of háður tækninni
    Nemandi hefur lengi notað AI til að skrifa ritgerðir, gera verkefni og undirbúa sig fyrir próf. Dag einn lokast fyrir AI-kerfi í landinu hans.
  • Hann þarf að skila heimaverkefni en veit ekki hvernig á að byrja án hjálpar.
  • Hann á erfitt með að útskýra efnið fyrir kennara því hann hefur ekki æft eigin úrvinnslu.
  • Aðrir nemendur, sem hafa unnið meira sjálfstætt, standa sig betur en hann.
  • Sýnið hættuna við að treysta of mikið á gervigreind og mikilvægi þess að þjálfa eigin hæfni og gagnrýna hugsun.
  • Aðgengi fatlaðra – með og án AI/IoT
  • Blindur einstaklingur með snjalltæki og AI fær leiðsögn, les texta og fer í sjálfkeyrandi bíl. Annar þarf að treysta á aðra, getur ekki lesið sjálfur og bíður eftir strætó.
  • Sýnið hvernig tækni getur bæði aukið jöfnuð og skapað útilokun.

 

Skref 2

Mismunandi leiðir til að búa til handrit:

  1. Samtal
    Nemendur skrifa samtal milli tveggja eða fleiri persóna sem sýnir ólíkan aðgang að AI.
  2. Frásögn
    Hópurinn segir sögu (eins og smámynd eða heimildaklippa) þar sem fylgst er með aðstæðum mismunandi einstaklinga.
  3. Skets/Leikþáttur
    Nemendur semja stuttan gamansaman eða dramatískan leikþátt um aðstæður.
  4. Fréttapakki eða heimildamynd
    Einn leikur fréttamann, aðrir viðmælendur. Þeir greina stöðuna eins og hún sé alvarlegt mál í fréttum.
  5. Hugleiðing eða rökræða
    Nemendur skapa vettvang þar sem persónur ræða ágreininginn (t.d. kennari og nemandi, starfsmaður og yfirmaður, foreldri og barn).

Skref 3 – Val um upptökuform

  • Einföld upptaka í einni töku – hópurinn stillir upp símann/spjaldtölvuna og tekur upp allt í einu, án klippingar.
  • Klippimyndband – hópurinn notar fleiri senur, skiptir hlutverkum í upptöku og bætir við texta eða myndum.

Báðar leiðir eru samþykktar, svo hópar geta valið eftir því hversu öruggir þeir eru í tækninni.

 

 

Skref 4 – Lokaskil

  • Myndband 3–5 mínútur
  • Handrit skal fylgja með - word skjal - frjálfst form.

 

Ávinningur verkefnis

  • Þjálfar gagnrýna hugsun og túlkun
  • Kenna nemendum að búa til handrit og leiknar aðstæður
  • Tryggja að allir taki þátt í vinnunni

 

Data retention summary