Verkefni 1 – Menningarleikurinn: Giskaðu á menningu (paraverkefni eða hópaleikur)
Completion requirements
Verkefni 1 – Menningarleikurinn: Giskaðu á menningu (paraverkefni eða hópaleikur)
Markmið: Að skilja muninn á hlutlægri og huglægri menningu og skoða menningarlegan fjölbreytileika.
Hugtök: Hlutlæg menning – Huglæg menning – Menningarkimi – Menningarlegur fjölbreytileiki – Alþjóðavæðing
Leiðbeiningar:
- Par fær eitt dæmi, t.d. „tískuföt“, „trú“, „tungumál“, „matarmenning“, „rapptónlist“
- Þeir ákveða:
- Er þetta hlutlæg (hlutur eða sjáanlegt)?
- Eða huglæg (hugsun, gildi, hugmynd)?
- Þeir kynna eitt dæmi og segja:
- Hvaða menningarkimi gæti tengst þessu?
- Hefur þetta borist með alþjóðavæðingu?
Dæmi: Rapptónlist → hlutlæg (tónlist) + menningarkimi ungs fólks → hefur borist með alþjóðavæðingu