Verkefni: Hryðjuverk – þróun, hugtök og ný tækni
Verkefni: Hryðjuverk – þróun, hugtök og ný tækni
Markmið:
- Nemendur skilji flóknar orsakir og þróun hryðjuverka.
- Nýti fjölbreytt hugtök og söguleg dæmi til að útskýra áhrif og eðli árása.
- Kynnist samtímalegum áskorunum s.s. gervigreind, samfélagsmiðlum og djúpfölsunum.
- Nýti gervigreind til að styðja vinnu sína en skrifi alltaf með eigin orðum.
HLUTI 1 – Hugtök í samhengi (40–60 orð/hugtak)
Veldu 6 hugtök af listanum hér að neðan og útskýrðu þau.
Þú mátt nota ChatGPT eða önnur AI-verkfæri til að nálgast fyrstu útskýringu – en settu fram með eigin orðum og nefndu dæmi úr lesefni, sögulegum árásum eða eigin greiningu.
Valmöguleg hugtök:
- Netárásir
- Flugrán
- Mannrán
- Fjölmiðlaáhrif
- Söguleg þróun og bylgjur
- Anarkistar
- Þjóðernishyggja
- Trúarhryðjuverk
- Vinstribyltningar
- Hatursglæpir
- Róttæking
- Öfgahægri
- Vistfræðihryðjuverk
- Eftirlit
- Gervigreind
- Drónar
- Djúpfalsanir
- Samfélagsmiðlar
- Fjármögnun
- Nýlendustefna
HLUTI 2 – Valgreining: Hryðjuverkasamtök og atburðir
Veldu ein samtök eða eina árás af listanum hér að neðan.
Skrifaðu greiningu í 150–200 orðum þar sem þú notar a.m.k. 3 af hugtökunum úr hluta 1.
Veldu eitt:
- Al-Qaeda og árásin á Tvíburaturnana
- ISIS og áhrif trúarhryðjuverka
- Boko Haram og stúlkunum í Nígeríu
- ETA og spænska ríkisvaldið
- IRA og átök á Írlandi
- FARC og fíkniefnastríðið í Kólumbíu
- PFLP og flugrán
- Rauða herdeildin (Þýskaland) eða Rauðu herdeildirnar (Ítalía)
- London (2005), París (2015), Brussel (2016), Bali (2002) eða Mumbai (2008)
Spurðu gervigreind:
- Hverjar voru orsakir árásanna eða starfsemi hópsins?
- Hvaða samfélagsbreytingar eða sögulegar rætur skiptu máli?
- Hvernig höfðu nýjar tæknibreytingar eða fjölmiðlaáhrif áhrif?
- Hvaða viðbrögð komu frá almenningi, ríkjum eða alþjóðasamfélaginu?
HLUTI 3 – Gagnagreining með Our World in Data
Farðu á https://ourworldindata.org/terrorism
Veldu eitt graf eða töflu sem sýnir þróun, tíðni eða áhrif hryðjuverka.
Skrifaðu í 100–150 orðum hvað gögnin sýna – og tengdu þau við a.m.k. eitt hugtak úr hluta 1.
Þú mátt nota AI til að útskýra gögnin fyrst, en samantektin skal vera með eigin orðum.
Dæmi um gagnaspurningar:
- Hver er þróunin í fjölda árása?
- Hvaða lönd eru í hættu?
- Tengjast vissar árásir ákveðnum hugmyndakerfum (trú, þjóðerni, tækni)?
- Hefur netárásum fjölgað?
HLUTI 4 – Framtíðarsýn og tæknin
Skrifaðu stutta hugleiðingu (100–150 orð) þar sem þú notar gervigreind (t.d. ChatGPT) til að kanna:
Hvernig gætu tæknibreytingar (t.d. djúpfalsanir, drónar eða gervigreind) haft áhrif á þróun hryðjuverka á næstu árum?
Markmið: Sýna að þú getur notað AI sem tæki til að víkka sjónarhorn – en endurskrifar það á þínu eigin máli og með gagnrýnu hugarfari.
Aðstoð frá AI – Dæmi um gagnlegar spurningar
- „Útskýrðu hvernig netárásir tengjast hryðjuverkum“
- „Hver eru söguleg dæmi um vinstribyltningar og hryðjuverk?“
- „Hvernig hafa samfélagsmiðlar breytt útbreiðslu róttækni?“
- „Hvaða hlutverk gegna drónar í nútíma hryðjuverkum?“