Verkefni: Hryðjuverk – hugtök, kenningar og raunveruleg dæmi
Verkefni: Hryðjuverk – hugtök, kenningar og raunveruleg dæmi
Markmið: Nemendur skilgreina og útskýra lykilhugtök tengd hryðjuverkum, bera þau saman, og beita þeim í greiningu raunverulegra atvika. Notkun gervigreindar er leyfð og æskileg – en niðurstöður skulu alltaf skrifaðar með eigin orðum.
Hluti 1 - hugtakaskilningur
Notaðu lesefnið og/eða gervigreind til að útskýra eftirfarandi hugtök með eigin orðum (40–60 orð hvert).
Taktu fram hvernig hugtakið birtist í raunverulegum atburðum eða hvernig það skiptir máli í greiningu á hryðjuverkum.
- Hryðjuverk
- Einstæðir hryðjuverkamenn (lone wolf terrorism)
- Ríkisstudd hryðjuverk
- Trúarleg hryðjuverk
- Pólitísk hryðjuverk
- Afbrota hryðjuverk
- Hryðjuverkalöggjöf
- Skynjað óréttlæti
- Félagsleg einangrun
- Félagslegt eftirlit
Hluti 2 – hugtök sett í samhengi
Lestu lýsingu á einum af eftirfarandi atburðum og skrifaðu stutt greiningarsvar (100–150 orð) þar sem þú notar minnst þrjú af hugtökunum hér að ofan.
Veldu EITT af neðangreindum:
- Crocus-árásin í Moskvu
- Anders Behring Breivik og Útey
- Theodore Kaczynski (Unabomber)
- Charlie Hebdo árásin
- Guðmundar- og Geirfinnsmálið (sjónarhorn: skynjun, eftirlit og túlkun)
Spurningar sem þú getur notað til leiðbeiningar:
- Hvaða gerð hryðjuverka átti sér stað?
- Hvernig skýra kenningar um skynjað óréttlæti eða félagslega einangrun atburðinn?
- Hver var tilgangurinn og hvernig brást samfélagið við?
Hluti 3 – Samantekt
Skrifaðu samantekt (100–150 orð) með eigin orðum, byggt á upplýsingum úr lesefni og niðurstöðum frá gervigreind.
Þú verður að nota a.m.k. þrjú af hugtökunum í greiningunni og hafa beina tilvísun í efni kaflans.