Stafræn afbrot: Heimasíðugreining (gervigreind)
Verkefni: Netnotkun og netglæpir í Bandaríkjunum
Markmið
Nemendur læra að lesa tölfræði, draga ályktanir og skoða samfélagslega þýðingu tölulegra gagna um netnotkun og netglæpi. Þeir vinna sjálfstætt með myndræna framsetningu gagna, fá aðstoð frá gervigreind og skrifa eigin greiningu með gagnrýninni hugsun.
Þriggja skrefa verkefni
1. Sjálfstæð vinna (án gervigreindar)
Farðu á vefinn:
https://www.statista.com/topics/2588/us-internet-users-and-cybercrime/#statisticChapter
Veldu fimm þætti sem þú telur áhugaverða. Það geta verið línurit, súlur eða kökurit, t.d.:
– U.S. cybercrime victims 2023, by age
– Cyber crime complaints by type
– Losses due to cybercrime in the U.S.
– Most common types of cybercrime targeting consumers
– Share of people taking cybersecurity precautions
Skrifaðu stutta samantekt í efnisgreinum þar sem þú lýsir því hvað hver mynd segir, hvað stendur upp úr, og hvernig þróun kemur fram. Reyndu t.d. að svara:
- Hvaða hópar virðast mest í hættu?
- Hvaða tegundir glæpa eru algengastar?
- Hvernig þróast vandinn yfir tíma?
- Hver gæti verið samfélagsleg skýring eða afleiðing?
2. Aðstoð með gervigreind
Þegar þú hefur unnið með gögnin geturðu beðið gervigreind um aðstoð, t.d.:
- „Hver eru algengustu netglæpir í Bandaríkjunum og hvers vegna?“
- „Af hverju eru eldri aldurshópar oft fórnarlömb netsvika?“
- „Hvernig hafa netglæpir þróast eftir COVID-19?“
- „Geturðu hjálpað mér að skrifa efnisgrein um áhrif netglæpa á samfélagið?“
- „Hvaða varnir eru árangursríkastar gegn algengum netglæpum?“
Notaðu svörin til að fá ný sjónarhorn eða orðalag – en skrifaðu þína eigin úrvinnslu og túlkun.
3. Samanburður og heildarniðurstaða
Skrifaðu stutta lokaniðurstöðu þar sem þú:
- Lýsir því hvort AI kom með eitthvað nýtt sem þú hafðir ekki hugleitt.
- Segir hvort þér fannst útskýringar AI gagnlegar, of almennar eða óljósar.
- Túlkar hvernig samspil tölfræði og gervigreind getur styrkt greiningarhæfni í afbrotafræði.