Félagsleg staða og afbrot: Heimasíðugreining (gervigreind)
Verkefni: Fangelsi og afbrot – hver eru tengslin?
Verkefnislýsing
Í þessu verkefni átt þú að skoða og bera saman gögn um fangafjölda og morðtíðni í fjórum löndum: Íslandi, Japan, Tyrklandi og Bandaríkjunum. Markmiðið er að kanna hvort tengsl séu á milli þess hversu margir sitja í fangelsi og hversu mörg morð eru framin í viðkomandi löndum. Þú notar gervigreind til að fá nýja sýn á viðfangsefnið – en vinnur fyrst sjálfstætt og metur svo gagnsemi AI-aðstoðar í lokin.
1. Sjálfstæð vinna án gervigreindar
Opnaðu heimasíðurnar www.ourworldindata.org/grapher/prison-population-rate og www.ourworldindata.org/grapher/homicide-rate-unodc. Þar finnur þú opinber gögn um fangafjölda og morðtíðni í heiminum. Finndu nýjustu tölur fyrir Ísland, Japan, Tyrkland og Bandaríkin. Skráðu hversu margir einstaklingar sitja í fangelsi á hverja 100.000 íbúa í hverju landi, og hversu mörg morð eru framin á hverja 100.000 íbúa.
Skrifaðu stutta samantekt þar sem þú lýsir hvað stendur upp úr í tölunum. Er eitthvert land sem sker sig úr? Er meiri fangafjöldi þar sem morðtíðni er há? Eða eru dæmi um lönd með lágan fangafjölda og lága morðtíðni? Reyndu að útskýra í eigin orðum hvað gögnin segja þér.
2. Aðstoð með gervigreind
Þegar þú hefur unnið þína eigin greiningu, getur þú notað gervigreind (til dæmis ChatGPT) til að fá aðra sýn á efnið. Þú getur spurt:
„Eru tengsl milli fjölda fanga og morðtíðni í þessum fjórum löndum?“
Eða: „Hvaða félagsfræðilegu skýringar má setja til að skýra tengsl fangafjölda og ofbeldis?“
Einnig geturðu beðið gervigreind um að bera saman löndin, lýsa hugsanlegum orsökum og draga fram hvað sé ólíkt í samfélagsgerð, menningu eða löggjöf.
Mundu að þú mátt ekki afrita svarið frá AI orðrétt – þú átt að nýta það sem hugmyndabanka, og gagnrýna það sem þar kemur fram.
3. Samanburður og niðurstaða
Að lokum skaltu skrifa lokaorð þar sem þú berð saman eigin niðurstöður við það sem gervigreindin sagði. Var hún sammála þér? Kom hún með eitthvað sem þú hafði ekki hugleitt? Finnst þér hún hafa útskýrt eitthvað betur – eða kannski of einhliða?
Greindu styrkleika og veikleika í nálgun gervigreindar og metið hvort og hvernig hún hjálpaði þér. Niðurstaðan á að vera skrifuð með þínum eigin orðum og endurspegla þína afstöðu til þess hvað gögnin sýna – og hvað það þýðir félagsfræðilega.