Áhrifaþættir afbrota : Heimasíðugreining
Gun Violence Archive er netskjalasafn yfir skotvopnatengd ofbeldisatvik sem safnað er frá yfir 7.500 löggæsluumdæmum, fjölmiðlum, stjórnvöldum og viðskiptalegum aðilum daglega í því skyni að leggja fram rauntíma gögn um niðurstöður ofbeldis. GVA er sjálfstæð gagnaöflun og rannsóknarhópur án tengsla við hagsmunasamtök.
Skotvopnalöggjöfin í Bandaríkjunum er mjög frjálslynd miðað við þá löggjöf sem við höfum á Íslandi. Það er mismunandi eftir fylkjum hvers er krafist en í sumum fylkjum eru mjög takmarkaðar kröfur meðan að í öðrum er krafist, bakgrunnsathugunnar, leyfis frá fylki og skrásetningar. NIðurstaðan er sú að hvergi í heiminum er jafn mikið af skotvopnum í umferð og í Bandaríkjunum þar sem fyrir hverja 100 Bandaríkjamenn eru 120 skotvopn. Hlutfall þeirra sem eru myrtir með skotvopnum í Bandaríkjunum er 70% og eru 50% þeirra sem eru myrtir myrtir með skammbyssum.
Farðu inn á vefsvæðið https://www.gunviolencearchive.org/.
1. Hversu mörg skotvopnatengd dauðsföll hafa átt sér stað í USA á þessu ári?
2. Hversu mörg sjálfsvíg tengd skotvopnum hafa átt sér stað í USA á þessu ári?
3. Hversu mörg skotvopnatengd dauðsföll hafa átt sér stað í USA á þessu ári að fráskildum sjálfsvígum?
4. Á hvaða svæðum Bandaríkjanna eru flest morð sem rekja má til skotvopna?
5. Hvaða skýringar kunna að vera á dreifingu eftir landssvæðum?
6. Hversu mörg skotvopnatengd dauðsföll hafa átt sér stað í USA árið 2020?
7. Hversu mörg skotvopnatengd meiðsl áttu sér stað í USA árið 2020?
8. Hvernig hefur fjöldi skotárása þróast frá 2014-2020?
9. Hvernig er fjöldi dauðsfalla samanborin við fjölda tilvika þar sem skotvopn eru notuð í varnarskyni?
10. Hvað finnst þér um skotvopnalöggjöfina í USA (30-50 orð)?
11. Telur þú að þessi síða sé trúverðug og gögnin sem birtast á síðunni séu áreiðanleg (hvers vegna eða hvers vegna ekki)?