Verkefni: Afbrot og samfélög
Verkefni: Afbrot og samfélög
1. Lestur og greining:
Veldu eitt atriði úr kaflanum sem þér fannst athyglisvert eða kom á óvart – t.d. um morðtíðni, skráningu nauðgana eða fangelsið á Grænlandi.
2. Stutt svör (1-3 setningar hvert):
a) Af hverju er erfitt að bera saman afbrotatölur milli landa?
b) Hvers vegna er morðtíðni talin áreiðanlegur mælikvarði?
c) Hvað einkennir lönd með lága tíðni morða?
d) Nefndu tvo samfélagslega þætti sem geta haft áhrif á ofbeldisglæpi.
e) Hvað gerir fangelsið á Grænlandi frábrugðið mörgum öðrum fangelsum?
3. Rýni og samræða:
Hvers konar samfélagsaðgerðir telur þú að virki best til að minnka afbrotatíðni? Rökstyddu með einu dæmi úr kaflanum. (3–5 setningar)
4. Gervigreind:
Spyrðu gervigreind (t.d. ChatGPT):
„Af hverju gæti mikið traust til lögreglu haft áhrif á afbrotatíðni?“
Skrifaðu niður svar hennar og veltu fyrir þér hvort þú ert sammála eða ekki.