Verkefni: Raðmorðingjar, sjálfsvíg og samfélagið
Verkefni: Raðmorðingjar, sjálfsvíg og samfélagið
Markmið: Nýttu gervigreind til að draga saman efni, greina mynstur og meta félagsfræðilegar skýringar á ofbeldi og sjálfsvígum.
Leiðbeiningar: Þú skalt nota gervigreind (eins og ChatGPT eða sambærilegt forrit) sem stuðning í verkefnavinnunni. Þú þarft samt alltaf að lesa efnið sjálfur og bera saman svörin við eigin skilning. Þú berð ábyrgð á verkefninu.
Hlutverk 1: Spurningar úr texta
Svaraðu eftirfarandi spurningum með því að vinna úr texta kaflans og bera svörin saman við það það sem gervigreind segir:
- Hvernig útskýrði Émile Durkheim sjálfsvíg út frá félagslegum þáttum?
- Hvað sameinar marga af þekktustu raðmorðingjum sögunnar samkvæmt kaflanum?
- Hvaða atriði úr æsku raðmorðingja eru oft nefnd sem áhættuþættir?
- Hvað er Macdonald-þríhyrningurinn og hvers vegna er hann umdeildur?
- Hvernig er hringrás raðmorðingja lýst í kaflanum (í 4–6 skrefum)?
- Hvaða líffræðilegu og sálfræðilegu þættir eru nefndir í tengslum við ofbeldishegðun?
Hlutverk 2: Samantekt með aðstoð gervigreindar
Veldu eitt af eftirfarandi viðfangsefnum og láttu gervigreind hjálpa þér að skrifa 100–150 orða samantekt. Þú þarft svo að breyta textanum sjálfur ef þarf:
- Durkheim og félagsleg tengsl í skýringum á sjálfsvígum
- Minningagripir og fantasíur raðmorðingja
- Líffræðileg og félagsleg skýring á hegðun raðmorðingja
- Rannsóknaraðferðir FBI og gagnabankar glæpamanna
ATH! Láttu fylgja með hvernig þú notaðir gervigreind:
- Hvað baðstu hana að gera?
- Hvernig fannst þér um svarið hennar?
- Breyttir þú einhverju?
Hlutverk 3: Gagnrýnið mat
Skrifaðu stutt (5–8 línur) svar við einni af eftirfarandi spurningum:
- Hvað getur verið gagnlegt (og hvað varasamt) við að nota gervigreind til að greina raðmorð og sjálfsvíg?
- Hvers vegna skiptir máli að skoða félagslega þætti frekar en aðeins sálfræðilega?
- Er hægt að nota þessar rannsóknir til að koma í veg fyrir glæpi í framtíðinni?