Skip to main content

Blocks

Skip Navigation

Navigation

  • Home

    • Site pages

      • My courses

      • Tags

    • My courses

    • Courses

      • Almennt nám

        • kennfel

        • almennfel

        • felhvit

        • felhvitII

        • Sakamál

        • rannfel

        • kennrann

        • felloft

        • félnút

        • afbalmenn

        • heilsufél

        • innggrunn

        • abserh

          • Ábendingar til kennara

          • Raðmorðingjar

            • QuizRaðmorðingjar - verkefnabanki a

            • QuizRaðmorðingjar - verkefnabanki b

            • QuizRaðmorðingjar - verkefnabanki c

            • QuizRaðmorðingjar: (próf 1)

            • AssignmentRaðmorðingjar: Ritun 1

            • AssignmentRaðmorðingjar: Ritun 2

            • AssignmentRaðmorðingjar: Orðapýramídi

            • AssignmentRaðmorðingjar: Heimasíðugreining

            • AssignmentRaðmorðingjar: Heimasíðugreining (gervigreind)

            • AssignmentRaðmorðingjar: Myndbandagreining 1

            • AssignmentRaðmorðingjar : Heimasíðugreining 2

            • AssignmentRaðmorðingjar: Myndbandagreining 2

          • Hugarheimur raðmorðingja

          • Mannshvörf

          • Hryðjuverk

          • Alþjóðleg hryðjuverk og viðbrögð

          • Hryðjuverk og hefndaraðgerðir

          • Skipulögð glæpastarfsemi

          • Afbrot í alþjóðlegum samanburði

          • Afbrot og eftirlit í stafrænum heimi

          • Fórnarlömb glæpastarfsemi

          • Þróun refsinga á tímum tæknibreytinga

          • Afbrotasálfræði

        • inngafb

      • Grunnfærni

  • Close
    Toggle search input
  • Log in

Afbrotafræði og sérh ...

Close
Toggle search input
  1. Home
  2. Courses
  3. Almennt nám
  4. abserh
  5. Raðmorðingjar
  6. Raðmorðingjar: Heimasíðugreining (gervigreind)

Raðmorðingjar: Heimasíðugreining (gervigreind)

Completion requirements

Verkefni: Raðmorðingjar – greining á gögnum og orsökum

Markmið

Nemendur vinna sjálfstætt með gagnagrunn um raðmorðingja frá Radford University, afla sér upplýsinga af vefnum og ígrunda þýðingu tölfræðinnar. Þeir fá aðstoð frá gervigreind til að dýpka skilning, og meta í lokin hvernig AI getur stutt við greiningu og túlkun.

 

Þriggja skrefa verkefni

1. Sjálfstæð vinna (án gervigreindar)

Farðu á vef Radford University og leitaðu að upplýsingum um raðmorðingja og gagnasafn tengdum raðmorðum:
https://www.researchgate.net/publication/373258117_RadfordFGCU_Annual_Report_on_Serial_Killer_Statistics_2023

Finndu og skráðu svör við eftirfarandi spurningum með eigin orðum:

  1. Hvernig þróaðist fjöldi raðmorðingja á 20. öldinni?
  2. Hvernig þróaðist hlutfall þeirra eftir kyni?
  3. Hver er algengasta ástæða raðmorða?
  4. Hver er næstalgengasta ástæða?
  5. Hver er sú þriðja algengasta?
  6. Hver er meðalgreindarvísitala raðmorðingja samkvæmt gögnunum?
  7. Hvaða morðaðferð tengist þeim sem hafa hæstu greind?
  8. Hvaða land hefur flest skráð tilvik raðmorðingja?
  9. Hve hátt hlutfall fórnarlamba eru karlar?

10–15. Skrifaðu stutta ígrundun:

  • Hvernig gekk þér að finna gögnin?
  • Hvernig fannst þér að vinna verkefnið?
  • Hvað fannst þér áhugaverðast og hvers vegna?
  • Hvaða gagn getur verið af því að greina gögn um raðmorðingja fyrir samfélag, rannsóknir eða öryggismál?

 

2. Aðstoð með gervigreind

Eftir að þú hefur svarað spurningunum sjálfur geturðu beðið gervigreind um að hjálpa þér að bæta svörin eða fá aðra sýn. Þú gætir spurt:

  • „Af hverju voru fleiri raðmorðingjar í Bandaríkjunum á 20. öldinni?“
  • „Hvaða sálfræðilegu þættir tengjast algengustu orsökum raðmorða?“
  • „Er einhver tenging á milli greindarvísitölu og tegund morða?“
  • „Hvaða hlutverki gegnir fjölmiðlaumfjöllun í áhuga fólks á raðmorðingjum?“
  • „Af hverju er mikilvægt að uppfæra gagnasöfn um raðmorðingja?“

Mundu: Þú átt að nýta innsýn AI sem stuðning eða til að velta upp fleiri möguleikum – ekki sem aðaltexta eða nýta hana til að svara fyrir þig.

 

3. Samanburður og niðurstaða

Skrifaðu stutta samantekt þar sem þú:

  • Berð saman þína eigin vinnu og það sem AI bætti við.
  • Metur hvort það kom fram nýtt sjónarhorn sem hjálpaði þér.
  • Túlkar hvort betra sé að nýta gervigreind til að vinna svona verkefni.
Data retention summary