Framandi félagslegir töfrar: Greining - Tæknin og töfrarnir
Verkefni: Tæknin og töfrarnir
Markmið
Þú skoðar hvernig tæknibreytingar hafa áhrif á vinnu, nám, samfélag og tengsl milli fólks. Þú notar hugtökin til að skýra hvort og hvernig félagslegu töfrarnir séu að dvína – eða breytast.
Spurning sem verkefnið snýst um:
Eru félagslegir töfrar að hverfa úr samfélaginu vegna tæknibreytinga?
Leiðbeiningar:
1. Skilgreindu lykilhugtök
Veldu 3–5 hugtök úr listanum hér að neðan. Skrifaðu stutta útskýringu á hverju hugtaki (með eigin orðum).
2. Taktu afstöðu
Hvað finnst þér? Er félagslegur galdur – til dæmis tengsl, nánd og samstaða – að hverfa úr samfélaginu? Notaðu hugtökin til að útskýra:
- Hverjir hagnast eða tapa?
- Hvernig breytist samband fólks við vinnu, nám eða aðra?
- Eru þessar breytingar neikvæðar, jákvæðar eða flóknar?
3. Skoðaðu rök gervigreindar (valfrjálst)
Spyrðu gervigreind t.d.:
„Hvernig hafa tæknibreytingar haft áhrif á félagsleg tengsl og samstöðu?“
„Eru félagslegir töfrar að hverfa?“
Skrifaðu niður helstu atriði sem AI leggur til og berðu saman við þín eigin sjónarmið.
4. Skrifaðu samantekt
Í lokin skrifar þú stutta grein eða niðurstöðu (10–15 línur) þar sem þú:
- Skýrir afstöðu þína
- Notar hugtökin
- Sýnir hvort þú ert sammála AI eða ekki – og af hverju
Hugtakalisti (veldu 3–5)
- Tæknivæðing
- Vélar og sjálfvirkni
- Fjarvinna
- Fjarnám
- Algóritmi
- Upplýsingatækni
- Fjórða iðnbyltingin
- Stafvæðing
- Atvinnurekendur / Verkamenn
- Félagsleg tengsl / Félagslegir töfrar / Félagsleg firring
- Félagsauður
- Skautun / Einstaklingshyggja / Misskipting / Neysluhyggja
- Stórnotendur
Hægt að skila:
- Sem stutt grein (1 bls)
- Sem kynning í hóp
- Sem hljóð- eða myndband (3–5 mín)