Loftslagsbreytingar og sjálfbærni 1. Heimasíðugreining
Completion requirements
Á heimasíðu Hagstofu Íslands er að finna mikið magn upplýsinga um margt sem viðkemur íslensku samfélagi. Ofarlega á síðunni má finna yfirflokka fyrir íbúa, samfélag, atvinnuvegi, efnahag og umhverfi. Í þessu verkefni ætlum við að skoða umhverfi. Þú smellir á umhverfi (lengst til hægri). Við notum fjóra fyrstu flokkana:
1. Ísland er 103.000 ferkílómetrar. Hve hátt hlutfall landsins eru friðlýst svæði (þarft að leggja saman fjóra flokka).
2. Hvernig dreifist úrkoma eftir landshlutum?
3. Hvernig skiptist losun koldíoxíðs eftir uppruna? Er eitthvað þar sem kemur þér á óvart?
4. Hvernig hefur hlutfall endurnýtingar og förgunar breyst?