Hópaverkefni - Metið fullyrðingu með heimild
Metið fullyrðingu með heimild
Vinnið tvö saman.
Veljið eina fullyrðingu úr listanum. Sumar eru réttar, sumar rangar og sumar of einfaldar. Metið fullyrðinguna og rökstyðjið með efni úr kaflanum um The Pursuit of Happyness, Chris Gardner, Christopher, fátækt, foreldrahlutverk, von, seiglu og félagsleg tækifæri.
Fullyrðingar:
· Fátækt snýst aðeins um skort á peningum.
· Chris Gardner nær árangri eingöngu vegna persónulegs dugnaðar.
· Húsnæðisóöryggi getur haft áhrif á öryggi barns og daglegt líf fjölskyldu.
· Ólaunað starfsnám er jafn aðgengilegt öllum, óháð efnahagslegri stöðu.
· Chris reynir að veita Christopher tilfinningalegt öryggi þótt hann geti ekki alltaf veitt honum efnislegt öryggi.
· Leikurinn á lestarstöðinni sýnir hvernig ímyndunarafl getur orðið bjargráð í erfiðum aðstæðum.
· Ameríski draumurinn birtist í myndinni sem einföld sönnun þess að allir geti náð árangri ef þeir leggja sig fram.
· Samband Chris og Christophers sýnir að traust getur skipt máli þegar barn býr við óvissu.
· Seigla Chris verður best skilin bæði út frá persónulegum styrk og þeim samfélagslegu hindrunum sem hann mætir.
Skrifið sameiginlegt innlegg í Forum, 8–12 setningar.
Einn úr hópnum smellir á Add discussion topic. Í Subject skrifið þið stutt heiti, til dæmis:
Fullyrðing: Fátækt og von
Í innlegginu þarf að koma fram:
Fullyrðingin sem þið völduð
Hvort hún er rétt, röng eða of einföld
Tvö hugtök úr kaflanum, til dæmis húsnæðisóöryggi, von, seigla, traust, birtingarstjórnun, foreldraábyrgð, efnislegur skortur eða félagslegur hreyfanleiki
Ein heimild úr kaflanum
Vísun í 2 blaðsíður úr kaflanum
Stutt dæmi úr myndinni eða kaflanum
Ykkar eigin niðurstaða
Skrifið nöfn nemenda neðst.
Svar við öðrum hópi
Svarið einum öðrum hópi með Reply. Svarið á að vera 4–6 setningar.
Segið hvort þið séuð sammála, ósammála eða viljið bæta einhverju við. Notið dæmi, hugtak og heimild úr kaflanum. Endið á spurningu sem fær hinn hópinn til að hugsa málið aðeins betur.
Mat
Metið er hvort þið hafið lesið kaflann, metið fullyrðinguna af skilningi, notað hugtök rétt, vísað í heimild, tengt við dæmi úr myndinni eða kaflanum og svarað öðrum hópi á málefnalegan hátt.