Hópaverkefni - Persóna, hugtak og kenning í Mean Girls
Persóna, hugtak og kenning í Mean Girls
Í þessu verkefni vinnur hópurinn með eina persónu úr kaflanum um Mean Girls. Markmiðið er að tengja persónuna við félagsfræðilegt hugtak, kenningu og dæmi úr myndinni eða kaflanum. Skrifið nöfn allra nemenda í hópnum í reitinn „Nöfn í hópnum“. Aðeins einn nemandi í hópnum notar sinn aðgang til að skila færslunni. Gott er að hafa verkefnalýsinguna opna í einum glugga og skilafærsluna opna í öðrum, svo auðveldara sé að fylgja leiðbeiningunum.
1. Veljið persónu
Veljið eina persónu úr kaflanum. Til dæmis má velja Cady, Reginu, Gretchen, Karen, Janis, Damian, Ms. Norbury eða Aaron. Sama persóna má helst ekki vera valin oftar en einu sinni. Hvaða persónu völduð þið?
2. Kynnið persónuna
Segið stuttlega hver persónan er og hvaða hlutverki hún gegnir í sögunni. Nefnið eitt atriði úr myndinni eða kaflanum sem sýnir hvernig persónan hugsar, hegðar sér eða kemur fram við aðra.
3. Veljið hugtak
Veljið eitt hugtak af listanum.
4. Tengið við kenningu
Veljið kenningu af listanum.
5. Túlkun út frá hugtaki og kenningu
Útskýrið með eigin orðum hvernig persónan, hugtakið og kenningin tengjast saman. Hvernig hjálpar hugtakið ykkur að skilja persónuna? Hvernig hjálpar kenningin ykkur að sjá stærra samhengi? Notið dæmi úr kaflanum eða myndinni.
6. Spurning til annarra hópa
Setjið fram eina spurningu til annarra hópa. Spurningin á að fá þá til að hugsa betur um persónuna, hugtakið eða kenninguna.
7. Athugasemdir við aðra hópa
Eftir að hópurinn hefur skilað sinni færslu eigið þið að skoða að minnsta kosti tvær færslur frá öðrum hópum. Opnið hverja færslu í Single view, smellið á Comments, skrifið stutta athugasemd og smellið síðan á Save comment.
Farið síðan aftur í ykkar eigin færslu, smellið á Edit entry og skrifið í reitinn „Athugasemdir við aðra hópa“ hvaða færslur þið skoðuðuð og hvernig þið brugðust við þeim.
8. Lokaskil í Assignment
Þegar hópurinn hefur lokið færslunni í Database og brugðist við tveimur færslum frá öðrum hópum, skilar einn nemandi lokasvari hópsins í Assignment-verkefninu „Lokaskil: Persóna, hugtak og kenning í Mean Girls“.
Í lokaskilunum eiga að koma fram nöfn allra í hópnum, hvaða persóna var valin, hvaða hugtak og kenning voru notuð og hvaða tvær færslur frá öðrum hópum voru skoðaðar. Kennari gefur einkunn og umsögn í Assignment-verkefninu.
Mat
Verkefnið er metið í Assignment út frá því hversu vel hópurinn tengir saman persónu, atriði, hugtak og kenningu. Bestu svörin sýna að hópurinn hefur lesið kaflann, skilið hugtakið og getur útskýrt persónuna með eigin orðum.