5. verkefni - Ábyrgð, refsing og ágóði
Verkefni 5: Ábyrgð, refsing og ágóði
Finndu þessa setningu í dómnum:
„Kröfu ákæruvalds um eignaupptöku ber að skoða með hliðsjón af þeirri grunnreglu refsiréttarins, að brotamaður skuli ekki hagnast af broti sínu.“
Svaraðu:
Á hvaða blaðsíðu í dómnum er setningin?
Hvað merkir að brotamaður eigi ekki að hagnast af broti sínu?
Hvaða eignir eða fjárhæðir voru gerðar upptækar samkvæmt dómsorði?
Af hverju skiptir eignaupptaka máli í skipulagðri fíkniefnastarfsemi?
Tengdu þetta við hugtökin hvati til afbrota (motivated offender) og ágóðasjónarmið.
Finndu í kaflanum umfjöllun um fjárhagslegan hvata og skjótfenginn auð. Skráðu blaðsíðu.
Útskýrðu hvernig peningarnir í málinu sýna að brotin voru ekki aðeins tilviljunarkennd heldur hluti af skipulagðri starfsemi.