Titanic: Kvikmyndarýni
1. Myndin í samhengi (staðreyndir + merking)
Greindu myndina með því að:
- nefna titil, ár, leikstjóra
- lýsa hvar sagan gerist og á hvaða tímabili
- útskýra í 1–2 setningum af hverju þetta samhengi skiptir máli fyrir félagslega lagskiptingu og hvernig Kuznetskúrfan fellur við samhengi myndarinnar (Vitna bæði í kaflann - Félagsleg lagskipting og spegilmynd lagskiptingar - blaðsíðutal)
2. Aðalpersóna og félagslegt hlutverk
Veldu eina aðalpersónu (t.d. Jack eða Rose) og:
- lýstu persónunni stuttlega
- útskýrðu hvort hún endurspegli frekar átakakenningar, samvirknikenningar eða blöndu
- Röstyddu svar þitt með einni setningu úr myndinni og einni tilvísun í bókina (bls.)
3. Persóna sem táknar átakakenningar
Nefndu eina persónu sem er einkennandi fyrir átakakenningar.
- Útskýrðu hvernig vald, ójöfnuður eða stéttaátök birtast í hegðun hennar
- Vitnaðu í beint atriði eða orðalag úr myndinni og bókinni (bls)
4. Persóna sem táknar samvirknikenningar
Nefndu eina persónu sem er einkennandi fyrir samvirknikenningar.
- Útskýrðu hvernig hún réttlætir eða viðheldur kerfinu
- Tengdu skýringuna við kaflann (með bls.-tölu)
5. Samanburður (lykilatriði)
Berðu saman þessar tvær persónur:
- Hvað greinir þær að í ólíkri sýn á samfélagið?
- Hvernig birtist þetta í samskiptum eða ákvörðunum þeirra (taktu dæmi)?
6. Andstæðingurinn
Hver eða hvað er andstæðingur sögunnar?
- Er það persóna, kerfi, hugmyndafræði eða sambland?
- Útskýrðu með tilvísun í björgunarbátana, peninga eða vald
7. Setningagreining – skilningur á persónu
Veldu eina af eftirfarandi setningum úr myndinni og greindu hana:
- „Ekki betri helmingurinn.“
- „Guð sjálfur gæti ekki sökkt þessu skipi.“
- „Ég myndi frekar vera hóran hans en konan þín.“
Útskýrðu:
- hver segir setninguna
- hvað hún segir um stétt, vald eða viðhorf
- hvaða kenningu hún tengist best
8. Tilgangur myndarinnar
Telur þú að Titanic sé fyrst og fremst:
- ástarsaga
- samfélagsgagnrýni
- eða bæði?
Rökstyddu með tengingu við kenningar í kaflanum.
9. Persónuleg ígrundun (stutt)
Hafði myndin áhrif á:
- hvernig þú skilur ójöfnuð
- eða hvernig fólk er metið eftir stöðu í samfélaginu?